ICE Eignamiðlun kynnir: Til leigu, fallega 2 svefnherbergja neðri sérhæð sem staðsett er í Las Filipinas (Villamartin). Gengið er inn í stofu með lazyboy sófa og 43¨ sjónvarpsskjá, borðstofa og opið eldhús, með öllum nauðsynjar áhöldum og tækjum. 2 svefnherbergi (1 hjónarúm og 1 koja, einbreitt og tvíbreitt). Með þessari eign fylgir fínasta útisvæði, íbúðin snýr í suður og að framan verðu eru þrjár hæðir af útisvæðum og einnig fínt útisvæði að aftanverðu með BBQ grilli, hér er hægt að njóta bæði morgun og kvöld sólar, sitthvoru meginn. Stutt ganga er í allar nauðsynjar þjónustu og innan við 10 mín akstur í Zenia Boulevard mallið, heilsugæslu og strendur. Í hverfinu er einnig sameiginleg sundlaug.