info@iceeignamidlun.com

INFO@ICEEIGNAMIDLUN.COM

FASTEIGNAUMSJÓN

FASTEIGNAUMSJÓN

Hver sér um þína fasteign á meðan þú ert ekki á Spáni?

Það getur reynst óþægilegt að vita af eign þinni tómri á meðan þú ert langt frá í öðru landi eða þegar langur tími líður á milli heimsókna.

Hvort sem eign þín á Costa Blanca sé þitt annað heimili eða einfaldlega eign sem þú leigir út þá er það mikilvæg ákvörðun að finna rétta aðilan til að hugsa um þína eign.

Við hjá ICE sjáum til þess að þín fjárfesting fái sem bestu mögulegu umönnun og þjónustu svo þú getir verið viss um að hún sé í góðum & öruggum höndum.
 
Eign sem er heimsótt reglulega er ólíklegri til að verða fyrir skemmdarverki og/eða innbroti.
Sumar eignir standa auðar í langan tíma, þar geta komið upp allskonar vandamál, svosem eins og raka/myglu blettir, þurr niðurföll sem geta valdið pöddu faraldri og vondri lykt, þetta eru atriði sem mögulega væri hægt að fyrirbyggja og eða leysa fljótt úr ef eignin er heimsótt reglulega.
 
Í hverju eftirliti förum við yfir útisvæðið og smúlum/ hirðum upp rusl eftir þörf – höldum útisvæðinu hreinu, bara það lágmarkar möguleika á innbroti.

Frá því augnabliki sem þú velur ICE er markmið okkar að bjóða þér uppá áhyggjulausa lúxus þjónustu, sem tryggir þér sem eiganda öryggi & hugarró.

Vitandi að eign þín sé í traustum & öruggum höndum.

Kynntu þér nánar þjónustuna hér fyrir neðan. 

 

Við förum í innlit x2 í mánuði & aukaferðir eftir óveður

Fasteignaumsjón er ekki "bara" fasteignaumsjón - heldur svo margt fleira

Eftir hverja heimsókn færðu stöðupóst þar sem að nokkrar myndir fylgja með

EFTIRLITSFERÐ

SKREF FYRIR SKREF
LOFTAÐ ÚT
Á meðan við sinnum öllum eftirfarandi atriðum.
TÖKUM MYNDIR
Eftir að hafa opnað alla glugga & rimla þá röltum við um eignina og tökum nokkrar rmyndir.
LÁTIÐ RENNA
Við látum renna í öll niðurföll í eigninni.
UMHIRÐA
Rusl hirt upp og fjarlægt af útisvæðum.
PLÖNTUR VÖKVAÐAR
Eftir þörf eða óskum eiganda.
SPÚLAÐ
Útisvæði (verandir og svalir) smúlaðar eftir þörf.
PÓSTKASSI LOSAÐUR
Póstur yfirfarinn og flokkaður og hann áframsendur til eiganda ef þörf ber á.
ÖRYGGI
Tökum öryggisskoðun á hurðum/gluggum.

ÖRYGGI

ÁSTAND
Þegar eignir eru tómar í X tíma getur ýmislegt komið uppá. Í hverju eftirliti athugum við vandlega hvort það sé sjáanlegur raki eða mygla.
BEINT SAMBAND
Eigendur og aðrir sem dvelja í eigninni hafa alltaf beint & opið samband við starfsmenn ICE.
ÓVEÐUR
Á ári hverju fáum við svokallað óveður þar sem að það hellirignir stanslaust, sem getur valdið leka inní eign. Við förum í sérstaka aukaferð þegar óveðrinu lýkur og tökum stöðuna.

ERTU Á LEIÐINNI?

EF ÞÚ HEFUR BÓKAÐ ÞRIF EFTIR BROTTFÖR – ÞÁ UNDIRBÚUM VIÐ EIGNINA FYRIR KOMU NÆSTU GESTA! 
HEITT / KALT
Við sjáum um að kæla niður eða hita upp þína eign fyrir komu þína, allt eftir árstíma.
MATARKARFA
Ert þú á leiðinni út og nennir ekki að hafa fyrir því að fara út í búð að versla nauðsynjar um leið og þú lendir? við hjá ICE reddum þessu!
ÞRIF
Viðskiptavinir í umsjón geta pantað þrif - fyrir komu í eign, eftir brottför eða bara bæði. Allt að 15% afsláttur veittur af venjulegu gjaldi.
YFIRFERÐ
Sérstök yfirferð um eignina, fyrir komu þar sem við undirbúum hana. Opnum fyrir rafmagn/gas/vatn.

AUKA ÞJÓNUSTA

 

MILLILIÐAR
Við að útvega verktaka í hina ýmsu verkþætti sem tengjast eigninni. Svo sem iðnaðarmenn, tæknimenn, o.s.f.r.v. - einnig getum við hlupið til við að hleypa iðnaðar og tæknimönnum inn í eignina.
STUÐNINGS ÞJÓNUSTA
Óhjákvæmilega eru fjölmörg svæði þar sem viðskiptavinir okkar upplifa erfiðleika í erlendu landi. Hvort sem það er að tryggja bílinn, bóka tæknimenn, o.s.f.r.v. Við hjá ICE getum séð um það gegn vægu gjaldi.
TENGILIÐAR
Við viðkomandi bæjaryfirvöld (rafmags/gas/vatns fyrirtæki) síma/net og öryggisfyrirtæki, tryggingarfélög og önnur tengd fyrirtæki varðandi eignina ef þörf er á.

Verð & þjónustusvæði

VERÐ

Ef þú hefur áhuga á fasteignaumsjón eða vilt fá frekari upplýsingar endilega sendu okkur póst á info@iceeignamidlun.com eða fylltu út formið sem er hér til hægri. Og við gefum þér verð fyrir þína eign, fer eftir stærð eignar og svæði.

ÞJÓNUSTUSVÆÐI ICE

Þjónustan okkar á þessu verði nær yfir allt það svæði sem er innan 20km radíus frá San Miguel de Salinas. Enn þó er hægt að semja um verð ef þín eign er á öðru svæði.

Komdu í áskrfit