Falleg nýleg íbúð á jarðhæð sem staðsett er í fallegum lokuðum kjarna, í rólega íbúðahverfinu El Raso, aðeins 2 km frá fallegum ströndum Guardamar. Stutt að keyra á glæsilega golfvelli eins og La Marquesa, La Finca, Las Colinas og Vistabella.
Íbúðin samanstendur af 2 rúmgóðum svefnherbergjum, bæði með fataskáp, og 2 baðherbergjum með góðri sturtu. Í stofunni er svefnsófi og fínasta smart sjónvarp. Útfrá stofunni og hjónasvítunni er útgengi út í sameiginlega garðinn, glæsilegt útisvæði, 2 útisundlaugar, barnaleiksvæði, púttvöllur og úti æfingatæki. Til þess að toppa kjarnan þá er einnig innisundlaug og sauna.
Íbúðin er búin öllum þeim búnaði sem þú þarft til að fullkomna fríið þitt. Í öllum herbergjum er loftkæling (kæli/hita) og internet er í íbúðinni. Eldhúsið er búið öllum helsta búnaði til matargerðar. Bakaraofn, blandari, samlokugrill, brauðrist, pottar-pönnur og almennt leirtau. Uppþvottavél, örbylgjuofn og ísskápur með frysti. Þvottahús/geymsla með þvottavél og ungbarnaferðarúm.
| JANÚAR – MARS | 550€ /VIKAN |
| APRÍL – SEPTEMBER | 700€ /VIKAN |
| NÓVEMBER – DESEMBER | 550€ /VIKAN |
| + ÞRIFGJALD Í LOK LEIGU 130€ |
Compare listings
Compare